Það sem fyrir þeim er haft?

Það er sorglegt að næstum fjórðungur níu ára barna séu of þung.
Ofþyngd getur aukið líkurnar á að einstaklingar fái of háan blóðþrýsting, áunna sykursýki, hjartasjúkdóma, öndunartruflanir, þunglyndi og margt fleira.  

Healthy-eating-image-3

Getur verið að íslensk börn sitji of mikið? Í skólanum, fyrir framan (leikja)tölvuna og sjónvarpið? Hreyfa þau sig kannski of lítið á móti?

Árið 2003-2004 borðuðu 9 og 15 ára íslensk börn of mikinn sykur, of lítið af trefjum. Neysla grænmetis og ávaxta var aðeins helmingur ráðlagðs dagsskammtar.

Ef ég ætti að giska á lausn myndi ég segja:
Meiri ávexti, grænmeti, hreyfingu og meira vatn og heilt korn.
Minna af nammi, gosdrykkjum, sykruðum mjólkurvörum, hvítu næringarsnauðu gúmmíbrauði og sjónvarpsglápi.

EN "hann Palli minn borðar ekki grautinn sinn nema það sé sykur á honum"! Mig grunar að "Palli" borði það sem fyrir honum hefur verið haft.

Þegar ég var ennþá yngri þoldi ég ekki grænkál, en þá var lítið grænkálsblað sett á diskinn minn á hverjum degi og einhvernvegin snerist umræðan við matarborðið mikið um öll næringarefnin í grænkáli þangað til ég gleymdi því hvað mér líkaði það illa.

 

  • Börn geta tekið þátt í að rækta grænmetið, elda matinn.
  • Það er hægt að segja þeim hvað spergilkálið gerir fyrir líkamann
  • O.s.frv. 

 

Það er til svo mikið af góðum og hollum mat. Það er gaman að borða hollt, manni líður mikið betur og það er mjög auðvelt ef viljinn er fyrir hendi.  

 

PS. Ég vil alls ekki gera lítið úr ofþyngd eða þeim sem þjást af henni. Þvert á móti finnst mér sorglegt að 9 ára börn þurfi að þjást ofþyngd og hennar fylgifiskum. Í langflestum tilfellum er ofþyngd lífstílstengd og þá er örugglega gott að grípa í taumana sem fyrst.

 

Heimildir:
"Hvað borða íslensk börn?" http://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item11594/hvad_borda_isl_born_og_ungl.pdf 
"Obesity in Children and Teens", American Academy of Child & Adolescent Psychiatry 


mbl.is 23% níu ára barna of þung
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Gefa þeim lýsi og feitt kjöt og mikinn fisk,ekki vera venja Börnin á skepnufóðu eins og Grænká og þessháttar, alt þetta tal um ofnæmi er vegna þess að það er verið að troða í Börnin allskonar kál og of mikið af ávöxtum.Hér fyrir 30-40 árum talað engin um ofnæmi.

Vilhjálmur Stefánsson, 1.10.2012 kl. 23:27

2 Smámynd: Elísa Elíasdóttir

Það væri fróðlegt að sjá hvaða heimildir þú hefur fyrir þessu með ofnæmið.

Niðurstöðum rannsókna fjölgar sífellt sem benda til þess að grænmetisfæði geti hindrað, stöðvað og jafnvel snúið við myndun krónískra sjúkdóma. Ef þú hefur áhuga þá er "The China Study" er umfangsmesta rannsókn í næringarfræði sem hefur verið framkvæmd. Hún stóð yfir í 27 ár og niðurstöðurnar eru sláandi!.

Í mjög stuttu máli er niðurstaða rannsóknarinnar sú að fólk sem neytir fæðu sem inniheldur hátt hlutfall dýraafurða er líklegra til að fá krónískra sjúkdóma. En þeir sem borðuðu grænmetisfæði voru minna líklegir til þess að fá þessa sömu sjúkdóma.

Elísa Elíasdóttir, 4.10.2012 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband